Leitað með neðansjávarfari

Deila:

Leit með neðansjávarfari að skipverjanum á Sighvati GK-57 hélt áfram í alla nótt og var leit hætt nú skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Farið verður yfir gögnin og staðan tekin aftur síðar í dag. Skipverjinn féll útbyrðis á laugardag og hefur verið staðið yfir umfangsmikilli leit frá þeim tíma. Frá þessu er greint á visir.is

Í gær var ákveðið að notast við neðansjávarfar frá Teledyne Gavia við leitina og hélt sú leit áfram fram á kvöld og í alla nótt að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.

„Það var leitað með þessu neðansjávarfari alveg núna til klukkan tíu og síðan á eftir að yfirfara þau gögn sem að fengust í þessum ferðum sem að neðansjávarfarið var látið fara á þessum skilgreindu leitarferlum sem að voru settir upp í gær, þannig að það getur tekið einhvern tíma,“ segir Ásgeir.

Neðansjávarfarið verður nú tekið upp úr sjó og farið yfir gögnin. Á meðan verður hlé gert á leitinni en staðan tekin aftur síðar í dag.

Áhersla er lögð á svæðið við Garðskagavita þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum voru öryggismyndavélar um borð í skipinu þegar slysið varð en engin upptaka er þó til.

Skipverjans sem er saknað heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980. Hann er búsettur í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum.

https://youtu.be/0LL9CvLwdvY

 

Deila: