Fiskveiðisamningur Íslands og Færeyja endurnýjaður

Deila:

Ísland og Færeyjar hafa undirritað samning um fiskveiðar fyrir næsta ár. Samninginn undirrituðu Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, og Árni Skaale, sjávarútvegsráðherra Færeyja. Samningurinn er endurnýjun á samningi þessa árs um botnfiskveiðar og loðnuveiðar Færeyja við Ísland og veiðar Íslendinga á uppsjávarfiski innan lögsögu Færeyja.

Samkvæmt samningnum verður botnfiskkvóti Færeyja í lögsögu Íslands 5.600 tonn eins og á þessu ári. Þar af eru 2.400 tonn af þorski og allt að 400 tonn af keilu. Loðnukvóti Færeyja verður 5% af heildinni sem Ísland, Grænland og Norðmenn ákveða, en þó aldrei meiri en 30.000 tonn.

Aðgangur til að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld verður óbreyttur; Það er að þjóðirnar mega taka kvóta sina í lögsögu hvors annars. Auk þess fá íslensk skip að veiða 1.300 tonn af makríl innan lögsögu Færeyja.

Ísland og Færeyjar hafa jafnframt gengið frá nýjum rammasamningi um gagnkvæmar fiskveiðar. Sá samningur kemur í stað samnings frá árinu 1976 og tekur gildi þegar þjóðþing beggja landanna hafa samþykkt hann. Hingað til hafa þessir samningar verið á könnu sjávarútvegsráðherra beggja landanna, en nú taka embættismenn við samningagerðinni.

 

Deila: