Loðna til Neskaupstaðar og síld til Seyðisfjarðar

Deila:

Barði NK kom með rúmlega 1.000 tonn af loðnu til Neskaupstaðar í gærmorgun og grænlenska skipið Polar Ammassak mun koma með 620 tonn í dag. Loðnan er öll unnin í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar.

Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða, segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar að aflinn hafi fengist í sjö holum norðaustur úr Kolbeinsey. Mest hafi fengist yfir daginn en nánast engin veiði sé á nóttinni.

Geir Zoёga, skipstjóri á Polar Ammassak, segir að loðnan hafi fengist norður af Melrakkasléttu. „Við vorum eina þrjá daga á veiðum. Það var dálítið að sjá en þarna voru hitaskil og þegar loðnan gekk í hlýrri sjó dreifði hún sér og varð nánast óveiðanleg. Annars líst mér afar vel á loðnuvertíðina. Það er eðlilegt að loðna sé þarna á ferðinni á þessum tíma og miðað við mælingu í fyrra og ungloðnumælingu er ekki hægt að vera annað en bjartsýnn. Undir lokin var veður farið að hamla veiðum og við erum á landleið í bölvaðri brælu. Nú er jólafrí framundan og það er gott til þess að hugsa,“ segir Geir.

Grænlenska skipið Polar Amaroq kom með 1.800 tonn af síld til Seyðisfjarðar um miðnætti í nótt. Síldin fékkst í Smugunni. Eggert Ólafur Einarsson verksmiðjustjóri segir að það sé afar kærkomið að fá þennan afla, setja í gang og láta verksmiðjuna snúast. „Það eru um sex mánuðir síðan síðast var framleitt í verksmiðjunni og að undanförnu hefur verið unnið að margvíslegum viðhaldsverkefnum. Það er því gott að fá þetta hráefni og undirbúa kolmunnatörnina sem hefst eftir áramótin,“ segir Eggert.
Barði NK landaði loðnu í Neskaupstað í gær. Ljósm. Smári Geirsson

 

 

Deila: