Íslenskur texti við fræðslumynd um andlegt álag á sjó

Deila:

Skömmu fyrir jól var settur íslenskur texti við fræðslumynd Háskólans í Cardiff í Wales um andlegt álag á sjó. Myndin heitir „Seafarers fatique“ og er hefur verið aðgengileg á ensku á Youtube en að frumkvæði Samgöngustofu og í samráði við Slysavarnaskóla sjómanna var myndin textasett á íslensku og þannig er hún nú aðgengileg öllum.

Í myndinni eru tekin viðtöl við sérfræðinga sem rannsakað hafa þessi mál og gefa þeir innsýn hvernig þessi mál hafa orðið meira áberandi um allan heim á síðustu árum.

Myndina má sjá hér en auk hennar má benda á aðgengilegar skýrlur á vef Samgöngustofu um þessi málefni.

Deila: