Besta rekstrarárið í sögu Vinnslustöðvarinnar

Deila:

Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.

„Við áramótin lítum við um öxl og getum afar vel við unað. Rekstrarárið 2022 er það besta í sögu Vinnslustöðvarinnar og heilt yfir gekk vel í öllum þáttum starfseminnar. Afurðaverð var hátt á mörkuðum og góð spurn eftir flestum fiskafurðum,“ segir Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum í áramótapistli á vef fyrirtækisins. Þar fer hann yfir þætti í starfsemi Vinnslustöðvarinnar á árinu 2022, sem og aðstæður í sjávarútvegi á Íslandi nú um stundir.

Vöxtur í erlendri starfsemi
„Erlenda starfsemin gekk vel, sérstaklega nefni ég saltfiskinn í Portúgal og sömuleiðis lofar starfsemi dótturfélagsins okkar í Finnlandi góðu ef horft er til uppgjörs tveggja fyrstu mánaðanna eftir að við stofnuðum sölu- og markaðsfyrirtækið VSV Finland Oy í Helsinki.

Rík ástæða er til þess að þakka starfsfólki okkar til sjós og lands og í dótturfélögum hérlendis og erlendis fyrir allt sem það lagði að mörkum og skóp árangurinn. Ég óska dugmiklu starfsfólki okkar alls góðs á nýju ári og framvegis,” segir Sigurgeir en víkur einnig máli sínu að atriðum í rekstrinum þar sem á móti hafi blásið. Til aðmynda hafi hvorki náðst að veiða allan loðnu- né makrílkvóta fyrirtækisins, auk þess sem humarveiðar voru ekki leyfðar.

„Loðnan er hins vegar stórt spurningamerki árið 2023. Stór árgangur loðnunnar skilaði sér ekki nema að hluta í seinustu mælingum. Það veldur miklum vonbrigðum.“

Kaupin á Ós og Leo Seafood stór biti
Sigurgeir segir að eitt stærsta verkefni ársins hafi verið að vinna með viljayfirlýsingu stjórnar Vinnslustöðvarinnar annars vegar og hluthafa í Ós ehf. og Leo Seafood ehf. í Vestmannaeyjum hins vegar frá í október um kaup VSV á öllu hlutafé í félögunum tveimur. Ós gerir út Þórunni Sveinsdóttur VE-401 og Leo Seafood ehf. starfrækir fiskvinnslu í Eyjum.

„Við vinnum frekar að þessu eftir áramótin og ég vænti þess að fljótlega verði skrifað undir kaupsamninga. Kaupin eru vissulega gríðarlega stór biti fyrir Vinnslustöðina en með þeim verður rennt nýrri og styrkri stoð undir félagið. Fyrir byggðarlagið Vestmannaeyjar eru þetta afar góð tíðindi.“

Saltfiskur unninn hjá Vinnslustöðinni.

Áhugaverðar hræringar í sjávarútvegi 
Sigurgeir segir jafnframt í pisli sínum að miklar og áhugaverðar hræringar séu í sjávarútveginum þessi misserin og nefnir sérstaklega kaup Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík fyrr á árinu 2022 og þær fregnir sem bárust nú milli jóla og nýárs að áformað sé að sameina Ísfélag Vestmannaeyja og Ramma í Fjallabyggð sundir heitinu Ísfélagið.

„Þetta eru auðvitað mikil tíðindi og hafa ýmsar hliðar. Stór og öflug fyrirtæki eru mikilvæg. Þau hafa slagkraft og getu. Ég er ekki og hef aldrei verið talsmaður þess að fyrirtækjum í sjávarútvegi fækki en skil hins vegar ástæður þróunarinnar. Ég hef nefnt opinberlega áður að eilíf umræða um nauðsyn eignaupptöku í sjávarútvegi skapar eitrað andrúmsloft óvissu og ótta í atvinnugreininni. Fjöldi einyrkja seldi reksturinn og forðaði sér og eigendur margra minni og meðalstórra fyrirtækja í sjávarútvegi gerðu slíkt hið sama, af sömu ástæðu.

Á þessu er líka önnur hlið. Hver vill fjárfesta eða koma nýr inn í atvinnugrein þar sem þjóðfélagsumræðan snýr eilíflega að beinni eignaupptöku eða óbeinni með hærri sköttum? Öll fyrirtæki hafa einhverju sinni verið lítil og viljað vaxa, líka í sjávarútvegi. Þau eru drifkraftur endunýjunar og nýsköpunar með nýjum hugmyndum og nálgunum. Sjávarútvegur er stór, öflug og sjálfbær atvinnugrein á Íslandi.

Við þurfum að hlúa að greininni og framtíð hennar því þannig og einungis þannig getur hún verið ein af undirstöðum velferðar landsmanna. Það gerum við með því að ungt og efnilegt fólk sjái tækifæri í að fjárfesta í greininni líkt og öðrum atvinnugreinum.

Við þurfum á stórum og öflugum fyrirtækjum að halda í sjávarútvegi en líka litlum og kraftmiklum fyrirtækjum. Þannig sjáum við framtíð greinarinnar og velferð þjóðarinnar mesta og besta en ekki einungis með því að fyrirtækjum fækki og þau stækki. Til þess þurfum við heilbrigt umhverfi í sjávarútvegi sem og í öllum öðrum atvinnugreinum,” segir Sigurgeir og óskar starfsfólki VSV, Vestmannaeyingum og landsmönnum gleðilegs ár.

Deila: