Gestafjöldi í Síldarminjasafninu sló met

Deila:

Gestir Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði hafa ekki verið fleiri á einu ári en í fyrra og árið var því bæði verið gjöfult og krefjandi, líkt og það er orðað í frétt á svæðisfréttavefnum trolli.is í Fjallabyggð. Gestir safnsins voru tæplega 30 þúsund, auk þess sem 62 síldarsaltanir voru á planinu við Róaldsbrakka.  Auk þessa voru leiðsagnir um safnið um 500 talsins.
„Þá sinnti starfsfólk auk gestamóttöku áframhaldandi uppbyggingu Salthússins, skráningu safngripa bæði nýrra aðfanga og eldri og gert var mikið átak í varðveislumálum á textíl í safnkostinum.

Á Síldarminjasafninu er verkefnalistinn óþrjótandi, verkefnin bæði krefjandi og skemmtileg og dagarnir fjölbreyttir. Starfsfólk safnsins hlakkar mikið til nýs árs og allra þeirra verkefna sem því fylgja,” segir í fréttinni.

Deila: