Ákvörðun um breytingar á fiskverði

Deila:
Fulltrúar hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS) tóku í gær ákvörðun um breytingar á viðmiðunarverði á afla, samkvæmt kjarasamingum. Verðbreytingarnar eru eftirfarandi:
Slægður þorskur hækkar um 4,2%
Óslægður þorskur hækkar um 4,2%
Slægð ýsa lækkar um -8,0%
Óslægð ýsa lækkar um -6,6%
Karfi helst óbreyttur
Ufsi hækkar um 4,5%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tók gildi í gær, 3. janúar 2023. Breytingin er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.
Deila: