Iðnaðarsýning í Laugardalshöll í haust

Deila:

Iðnaðarsýningin 2023 verður í Laugardalshöll um mánaðamótin ágúst-september. Það er fyrir fyrirtækið Ritsýn sf. sem stendur að sýningunni en fyrirtækið hélt þrjár sýningar í Laugardalshöll á haustdögum 2022, þ.e. sjávarútvegssýningu, landbúnaðarsýningu og fagsýninguna Stórreldhúsið. Allar voru sýningarnar fjölsóttar og sumar þeirra slógu aðsóknarmet. Þessar sýningar voru einstaklega vel sóttar og slógu sumar aðsóknarmet. Iðnaðarsýningin 2023 hefst fimmtudaginn 31. ágúst og stendur í þrjá daga, til laugardagskvölds.

Víðtæk og áhugaverð sýning
Í frétt frá Ritsýn segir að nú þegar hafi fjöldi fyrirtækja og stofnana pantað bása enda skapist með sýningunni einstakt tækifæri að ná til stórs hóps fagfólks og einnig hins almenna neytanda.
„Lögð verður áhersla á að hafa sýninguna víðtæka og áhugaverða jafnt á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar, orkutækni, hönnunar, hugverka og vistvænna lausna svo eitthvað sé nefnt. Sérstaða sýningarinnar er meðal annars fólgin í því að sýnendur fá eins marga boðsmiða; rafræna eða prentaða eins og þeir kjósa. Þannig næst afar vel til markhópa.
Iðnaður er mjög stór hluti hagkerfis okkar. Samkvæmt hagtölum skapar hann rúmlega um fimmtung landsframleiðslunnar. Og þá er aðeins rætt um beint framlag til landsframleiðslunnar. Hið óbeina framlag er mun meira. Iðnaðarsýningin 2023 spannar hið víða svið iðnaðarins.
Sýningin verður einstakur og spennandi vettvangur fyrir vörur og þjónustu og er opið fyrir básapantanir,“ segir í tilkynningu.

Framkvæmdastjóri Iðnaðarsýningarinnar 2023 er Ólafur M. Jóhannesson (olafur@ritsyn.is, 698 8150) og markaðssstjóri Inga Ágústsdóttir (inga@ritform.is, 898 8022)

Deila: