Árni Friðriksson kannar loðnugöngur

Deila:

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hélt úr Hafnarfjarðarhöfn í morgun til loðnukönnunar, líkt og það er kallað í frétt frá Hafrannsóknastofnun. Könnunin er í samstarfi við útgerðir uppsjávarveiðiskipa sem greiða fyrir þann aukakostnað Hafrannsóknastofnunar sem af henni hlýst.

Könnun undanfari nýrra mælingar á loðnustofninum
„Markmiðið er að safna upplýsingum um göngur og dreifingu loðnustofnsins austan og norðan við land,“ segir í frétt Hafrannsóknatofnunar.  „Slíkar upplýsingar hjálpa til að ákveða, hvenær það sé líklegast til árangurs að fara til mælinga á stærð loðnustofnsins og ná sem markverðustu mælingu á honum. Eins verði hægt að ákvarða það magn sem komið er inn á loðnumiðin og mögulega það magn sem kann að ganga snemma inn í hlýsjóinn suðaustanlands og tapast af mælisvæðinu, ef til þess kæmi.
Gert er ráð fyrir að þessi könnun geti varað í 1-2 vikur áður en farið verður til hefðbundinna stofnmælinga á báðum skipum Hafrannsóknastofnunar. Þær mælingar munu svo liggja til grundvallar að lokaveiðiráðgjöf á loðnu á þessari vertíð,“ segir í frétt stofnunarinnar.

Deila: