Menntaskólinn á Ísafirði leiðir námsbraut í fiskeldi

Deila:

Síðastliðinn föstudag var skrifað undir samning milli Menntaskólans á Ísafirði og fiskeldisfyrirtækjanna  Arctic Fish, Arnarlax og Háafells um framhaldsskólanám í fiskeldi en námsbrautin verður í samstarfi við Vestfjarðastofu og þrjá aðra framhaldsskóla á landinu sem munu bjóða hliðstætt nám.  Námsbrautin verður leidd af Menntaskólanum á Ísafirði og kemur til með að bera yfirskriftina  „hafið, umhverfið og auðlindir.“ Brautin verður stúdentsbraut með staðgóða þekkingu á umhverfinu, auðlindum hafsins og fiskeldi og innan hennar er eins árs nám sem kennir grunnþætti til starfa í fiskeldi.

Samstarfsskólar í verkefninu verða  Fjölbrautaskólann á Snæfellsnesi, Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki og Verkmenntaskóla Austurlands sem allir munu bjóða upp á fiskeldisbrautina. Skólarnir koma til með að samnýta þekkingu en verklegt nám verður á hverjum stað fyrir sig. Með náminu byggist upp sérfræðiþekking í landsfjórðungunum sem styrkir einnig fullorðinsfræðslu fræðslumiðstöðva landsins hvað varðar fiskeldi. Námið sem nú er lagt af stað með er afrakstur greiningarvinnu Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á menntunarþörf í fiskeldi í Evrópuverkefninu Blue Mentor.
Mikilvægur þáttur í verkefninu er stofnframlag fiskeldisfyrirtækjanna. Brautin mun fara af stað haustið 2023 og gert er ráð fyrir að námið verði sjálfbært hvað varðar rekstrarfé. Þó verður áfram fullt samstarf við fyrirtækin hvað varðar verklega kennslu og kynningar á starfsvettvangi.

Heiðrún Tryggvadóttir skólameistari í MÍ segist í umfjöllun um námið á vef Vestfjarðastofu hlakka til að innleiða, í samstarfi við hina framhaldsskólana, nám sem tengist fiskeldi með áherslu á hafið, auðlindir og umhverfið. Skólinn fagni samstarfi við fiskeldisfyrirtækin í nærumhverfinu sem sé mikilvægt í ljósi framþróunar í fiskeldi.

Fiskeldisfyrirtækin sem koma að náminu fagna samstarfinu. Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri Háafells segir það „frábært skref að koma á fiskeldisbraut við Menntaskólann á Ísafirði. Fiskeldi byggir á þekkingu og er þetta mikilvægur liður í því að mennta hæft starfsfólk. Það er sérstaklega ánægjulegt að það sé hér á svæðinu, en við hjá Háafelli leggjum mikið upp úr að innviðir og þjónusta byggist upp í nærumhverfi greinarinnar.” Í sama streng tekur Björn Hembre, framkvæmdastjóri Arnarlax og telur að nýtt nám í fiskeldi á Ísafirði og á öðrum landshlutum sé stórt skref fyrir eldisiðnaðinn. „Það er mikil þörf fyrir gott, hæfileikaríkt ungt fólk á komandi árum í greininni. Ég tel að við sem fyrirtæki getum ábyrgst að þeir sem hafa lokið náminu fái vinnu þegar þeir hafa lokið sínu námi.“

 

Deila: