Erfitt að forðast ýsuna

Deila:

Almennt eru ferskfisktogararnir að gera góða túra nú í upphafi ársins og það á einnig við um Vestmannaeyjaskipin Berg VE og Vestmannaey VE sem bæði lönduðu fullfermi í gær.  Afli beggja var blandaður en mest af ýsu, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir Arnar Richardsson, rekstrarstjóri skipanna, að um þessar mundir sé mikil áhersla lögð á blandaðan afla en auðveldast sé að sækja ýsuna og þess vegna sé gjarnan mest af henni.

Blessuð ýsan er víða
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að túrinn hafi gengið þokkalega. „Við byrjuðum á Stórhöfðahrygg en þar var heldur rólegt. Þá var haldið á Meðallandsbugt í ýsukropp og síðan á Ingólfshöfða í þorsknudd. Því næst lá leiðin á Mýragrunn og þar fékkst blandaður afli og þar var fyllt. Veðrið var fínt allan túrinn. Eitt helsta vandamál okkar um þessar mundir er að sneiða hjá ýsunni. Hún er víða blessunin,“ segir Jón.
Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir að þeir hafi veitt víða. „Þetta var verulegur þvælingur á okkur í þessum túr, alveg frá Eyjum og austur í Breiðamerkurdýpi. Allan tímann var verið að reyna að fá eitthvað annað en ýsu því það er býsna mikið af henni. Þetta tókst bærilega en oft höfum við fengið í skipið á styttri tíma,“ segir Birgir Þór.

Deila: