Skattamálum Samherja lokið með sátt

Deila:

„Fyrir þremur árum voru settar fram mjög alvarlegar ásakanir á hendur okkur um skattsvik og peningaþvætti sem var sagt hlaupa á milljörðum króna. Nú er komið í ljós að ekki stóð steinn yfir steini í þeim ásökunum og skattamálum okkar er nú lokið með niðurfellingu sakamála og nýrri álagningu eins og alvanalegt er í hefðbundnum skattamálum þar sem uppi eru álitamál um túlkun á skattskyldu,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.

Endurálagning og stjórnvaldssekt
Rannsókn skattrannsóknarstjóra tók til bókhalds og skattskila samstæðu Samherja hf. árin 2010-2018 þar sem öll gögn í rekstri þeirra félaga sem um ræðir voru ítarlega yfirfarin. Niðurstaðan hennar er þríþætt:
Í fyrsta lagi greiðir Samherji hf.  viðbótarskatt vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds af nokkrum sjómönnum á erlendum skipum. Að teknu tilliti til leiðréttinga á tekjuskattsálagningu nemur nettó viðbótarskattgreiðsla Samherja hf. 60 milljónum króna. Á þessu tímabili greiddi félagið 30.116 milljónir króna í skatta og hækkar skattgreiðsla félagsins því um 0,2% á tímabilinu vegna þessa.
Í öðru lagi greiðir Samherji hf. 15 milljónir króna í stjórnvaldssekt til ríkissjóðs vegna vangoldins tryggingagjalds.
Í þriðja lagi greiðir Sæból fjárfestingafélag ehf. tæplega 153 milljónir króna í viðbótarskatt. Þar af eru 20% fjárhæðarinnar vegna álags. Skattlagningin kemur til þar sem tekjur dótturfélags Sæbóls erlendis voru taldar skattskyldar hér á landi. Þær tekjur fengust reyndar aldrei greiddar. Um þennan þátt málsins ríkti veruleg réttaróvissa sem skorið var úr með nýlegum dómi Landsréttar í sambærilegu máli. Á því tímabili sem var til rannsóknar greiddi Sæból alls 2.300 milljónir króna í skatta og hækkar skattgreiðsla félagsins því um 6% á tímabilinu.
Í kjölfar þessa hafa mál sem voru til rannsóknar hjá héraðssaksóknara verið felld niður og réttarstaða þeirra einstaklinga sem eiga í hlut einnig.

Tekist á um skattskyldu
Á vef Samherja hf. segir að verulegur  ágreiningur hafi verið  um skattskyldu í þessum málum og skoðanir Samherja hf. og Skattsins ólíkar um lagagrundvöll skattskyldunnar. Gaumgæfileg skoðun Skattsins hafi leitt í ljós að gera mætti ráð fyrir að sá háttur sem hafður var á hefði ekki verið fullnægjandi í strangasta lagaskilningi. Líklegt væri að skattskylda hefði myndast að minnsta kosti að einhverju leyti. Við það hafi bæst nýlegur dómur Landsréttar í eðlislíku máli þar sem réttaróvissu sem hér skipti máli var eytt og það félag sem þar átti í hlut dæmt til skattskyldu.
„Við þessar aðstæður taldi Samherji rétt að fallast á túlkun Skattsins og þar með skattskyldu. Við þá ákvörðun vó þungt að átta einstaklingar höfðu verið ranglega hafðir fyrir sök og haft réttarstöðu sakborninga um árabil í tengslum við umrædd skattamál. Var ljóst að ef til málaferla kæmi myndu þeir þurfa að sæta því álagi sem slíku fylgir um ókomin ár. Að mati stjórnenda Samherja hf. var afar mikilvægt að geta leyst úr þeim fjötrum sem slíkri réttarstöðu fylgir fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga. Hér skipti einnig miklu máli að orrahríð opinberra aðila hefur staðið á Samherja hf., samstæðufélögum þess, stjórnendum og starfsmönnum í rúman áratug. Því hefur fylgt mikið álag og inngrip í rekstur Samherja ekki síst vegna þess að fjöldi starfsmanna hefur haft réttarstöðu sakborninga á þeim tíma.
Þá skiptir miklu fyrir reksturinn að vinnufriður skapist, starfsfólk geti gengið til sinna starfa með eðlilegum hætti, ótruflað af málarekstri ef nokkur kostur er að ljúka honum, jafnvel þótt í því felist að gefið sé eftir um ítrustu kröfur í málsvörnum og aukin útgjöld fyrir félagið. Eins og áður segir nema þau útgjöld aðeins 0,6% aukningu á greiddum sköttum á því tímabili sem um ræðir og hafa ekki umtalsverð áhrif á rekstur umræddra félaga,” segir á vef Samherja.

Óvenjulega hvöss umræða um félagið
Þorsteinn Már segir Samherja hf. hafa unnið af heilindum með skattayfirvöldum meðan á rannsókninni stóð og afhent öll þau gögn sem óskað hafi verið eftir.
„Skattrannsóknarstjóri átti frumkvæði að því að ljúka málunum með sátt, svo því sé haldið til haga. Það hefur verið óvenjulega hvöss umræða um félagið og okkar fólk, bæði í fjölmiðlum og á Alþingi. Það er því mikill léttir að geta hreinsað burt svo alvarlegar ásakanir með staðfestingu opinberra aðila. Hér er lykilatriði að málunum er nú lokið án þess að höfðað sé mál á hendur félaginu eða nokkrum einstaklingi,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

Deila: