Sendiherra Bandaríkjanna kynnti sér Sjávarklasann

Deila:

Sendiherra Bandaríkjanna, frú Carrin F. Patman, heimsótti Íslenska sjávarklasann á dögunum og kynnti sér starfsemi hans og verkefni. Þór Sigfússon tók á móti frá Patman og kynnti starfsemina, þar á meðal 100% Fish verkefnið og samstarf klasans við Great Lakes St. Lawrence Governors & Premiers sem nær til vatnanna miklu sem liggja að Illinois, Indiana, Michigan, Minnesota, New York, Ohio, Pennsylvania og Wisconsin í Bandaríkjunum og Ontario og Québec í Kanada.

Að því er segir á vef Sjávarklasans ræddu Þór og frú Patman ennfremur systurklasa Sjávaklasans vestan hafs og aðferðir til að minnka sóun í bláa hagkerfinu. Þá heilsaði frú Patman upp á frumkvöðla og fyrirtæki í húsinu. „Við þökkum innilega fyrir heimsóknina! Hún er góður grunnur að samstarfi framtíðarinnar,” segir í frétt um heimsóknina.

Á meðfylgjandi mynd fræðir Þór Sigfússon frú Carrin F. Patman, sendiherra, um starfsemina og verkefnin. Mynd: Sjávarklasinn

Deila: