Frumraun Smára sem skipstjóra á Hoffellinu

Deila:

Hoffell SU landaði um liðna helgi kolmunna á Fáskrúðsfirði í fyrsta sinn á þessu ári og raunar er þetta fyrsti túr nýja Hoffellsins á kolmunna en Loðnuvinnslan keypti skipið síðastliðið sumar. Og ekki bara það því Smári Einarsson var í þessum túr í fyrsta sinn skipstjóri. Á vef Loðnuvinnslunnar segir að Smári hafi verið á sjó frá unga aldri og á Hoffelli hefur hann verið frá því í október 2005.

„Var það að vísu annað skip en það sem ber nafnið núna en Smári hefur verið í áhöfn þriggja skipa með þessu fallega nafni.  En sú skemmtilega hefð hefur skapast hjá Loðnuvinnslunni, líkt og áður hjá móðurfélagi þess Kaupfélaginu, að nefna fleyin eftir fjöllum sem standa vörð um Fáskrúðsfjörð,“ segir í umfjölluninni.

Smári Einarsson, skipstjóri á Hoffelli SU.

Smári er 35 ára gamall og aðspurður sagði hann að hann hefði nú ekki endilega dreymt um að verða sjómaður þegar hann var lítill drengur, en einhvern veginn hefði það legið beint við þar sem sjómennska er stór atvinnugrein í fjölskyldunni. „Pabbi, afi og stjúpi minn voru sjómenn“ sagði Smári.  Hann hóf nám í Tækniskólanum til þess að læra til skipstjórnar, stundaði hann námið með vinnu og lauk því árið 2020. Nú starfar hann sem fyrsti stýrimaður á Hoffelli sem hefur það í för með sér að leysa skipstjórann af þegar hann bregður sér frá.

Stressandi en gaman
Þegar Smári var inntur eftir því  í viðtalinu hvernig fyrsti skipstjóratúrinn hefði gengið sagði hann að það hefði gengið vel. „Ég var bara passlega stressaður og þetta var gaman,“ bætti hann við.  Veðrið var ekki að leika við sjófarendur þessa daga sem Hoffellið var í sínum fyrsta kolmunnatúr. „Það var leiðindaveður og bræla á köflum,“ sagði Smári „en það gekk samt mjög vel að veiða og frábært að koma að landi með vel  kældan og ferskan afla í þessu magni.“  Smári sagði líka að samstarfsfélagarnir um borð hefðu tekið honum afar vel sem skipstjóra. „Við þekkjumst vel og höfum unnið lengi saman.“
Þegar skip skiptir frá einum veiðum í aðra líkt og Hoffell gerði á dögunum þegar síldveiðum var hætt og stefnan tekin á kolmunna, þá þarf að skipta um veiðafæri. Smári skipstjóri byrjaði því á því að fara til Færeyja til þess að skipta út trolli og því næst var farið á miðinn.

Deila: