„Það er spenna í loftinu“

Deila:

„Það er spenna í loftinu,“ segir Geir Sigurpáll Hlöðversson á vef Síldarvinnslunnar en í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað er að sögn allt að verða klárt fyrir loðnuvertíð. Allt vertíðarstarfsfólk er að mæta til starfa í dag og á morgun en unnið verður við framleiðsluna á þremur vöktum, 18 starfsmenn á hverri vakt.

Geir Sigurpáll segir að ávallt ríki ákveðin stemmning í upphafi loðnuvertíðar. „Reyndar höfum við þegar unnið þrjá loðnufarma og fryst um 1.100 tonn af úrvalshængi. Við vorum til dæmis að ljúka við að vinna 800 tonn úr Barða í morgun. Nú er hrognafylling loðnunnar um 8% en frysting á Asíu getur hafist þegar 13% hrognafyllingu er náð. Japansloðnan þarf hins vegar að hafa náð 15% hrognafyllingu. Hrognavinnslan sjálf hefst hins vegar ekki fyrr en hrognin hafa náð tilteknum þroska. Það má segja að við séum alveg tilbúnir í slaginn og loðnan er falleg og í góðu standi. Nú er bara beðið eftir niðurstöðu úr loðnuleitinni sem hefur staðið yfir,“ segir Geir Sigurpáll.

Barði NK landaði 800 tonnum af loðnu í fiskiðjuverið í Neskaupstað í morgun. Börkur NK hélt til loðnuveiða í gærkvöldi og Beitir NK er að sækja nýja nót til Reykjavíkur.

Meðfylgjandi mynd sýnir loðnuvinnslu í fiskiðjuveri SVN í Neskaupstað. Mynd:  Geir Sigurpáll Hlöðversson/svn.is

Deila: