Fræðast um sjálfbærar veiðar og nýtingu aukaafurða

462
Deila:

Á dögunum fékk Sjávarklasinn í Reyjavík heimsókn frá rannsóknarhópi Háskólans í Lundi og Marine Centre í Svíþjóð. Hópurinn er að vinna að samstarfsverkefni sem miðar að því að kanna framtíðar möguleika hafnarinnar í Simrishamn. Í verkefninu er lögð áhersla á sjálfbærar veiðar og framleiðslu á verðmætum hágæða vörum úr aukaafurðum sjávarafurða. 

„Teymið heimsótti Sjávarklasann til að læra af reynslu okkar Íslendinga og fá innsýn í það hvernig megi byggja upp net þekkingarsköpunar, frumkvöðla, tækni og markaðssetningar.  Markmiðið er að skapa sjálfbæra og arðbæra framtíð fyrir sjávarútveginn á Eystrasaltssvæðinu,“ segir í frásögn Sjávarklasans af heimsókninni. 

Á meðfylgjandi mynd er hópurinn ásamt Þór Sigfússyni, sem fræddi gestina um starfsemina.

Deila: