Áfellisdómur sem kemur ekki á óvart

Deila:

„Skýrslan er áfellisdómur yfir stjórnsýslu fiskeldis. Hún kemur sveitarfélögum á Vestfjörðum ekki á óvart sem hafa í mörg ár bent á að efla þurfi rannsóknir og eftirlit í greininni, og að ferli leyfisveitinga sé skilvirkt og gott. Aðkoma sveitarfélaga hefur verið lítil og ekki hlustað á raddir úr héraði,“ segir í nýrri  álýktun bæjarráðs Ísafjarðar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um stjórnsýslu sjókvíaeldis.

Tilefni til að bregðast við
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar vill að áhersla verði lögð á uppbyggingu starfa og eftirlits í nærumhverfi fiskeldisins.
„Störf tengd rannsóknum, eftirliti og menntun þarf að byggja upp í nærumhverfi atvinnugreinarinnar. Fiskeldistengd starfsemi fagstofnana hefur verið vanfjármögnuð og ekki skipulögð með tilliti til staðsetningar eða eðlis greinarinnar.
Fiskeldið er nú þegar orðin stór og burðug atvinnugrein í Vestfirsku samfélagi sem er komin til að vera. Tryggja þarf að tekjur komi til nærumhverfis greinarinnar, þannig að sá peningur sem rennur nú í fiskeldissjóð verði meiri.
Með tilkomu skýrslunnar er ljóst að hægt er að fara í aðgerðir til að styrkja og bæta stjórnsýsluna. Þannig geti fiskeldi vaxið í sátt við samfélag og náttúru.“

Deila: