Fallegur vertíðarfiskur hjá Vestmannaeyjatogurunum

Deila:

Eftir brælu framan af síðustu viku héldu Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE héldu til veiða sl. miðvikudag og komu bæði til hafnar með fullfermi síðastliðinn föstudag. Afli skipanna var mest þorskur og síðan nokkuð af ýsu. Á vef Síldarvinnslunnar segir Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, að það hafi verið mokveiði.
„Við vorum á Ingólfshöfða og tókum síðan eina sköfu á Víkinni. Þarna fékkst fallegur vertíðarfiskur, 7 kg. og stærri,” segir Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að þeir hafi sömuleiðisveitt á Ingólfshöfða og síðan klárað á Víkinni. „Þetta var hörkutúr, alveg þrælfínn. Og fiskurinn sem fékkst var súper vertíðarfiskur, fullur af lifur og gotu. Veðrið í heimsiglingunni var ekki sérstaklega skemmtilegt en það er ekkert nýtt,” segir Jón í frétt Síldarvinnslunnar.

Deila: