Fyrsti loðnufarmurinn til Vinnslustöðvarinnar

Deila:

„Við erum með 380 tonn af góðri loðnu sem fékkst austur af Ingólfshöfða. Hrognafyllingin er 14,5% og allt lítur þetta ljómandi vel út. Vonandi verður tíðarfarið á vertíðinni samt hagstæðara en í fyrra,“ sagði Eyjólfur Guðjónsson, skipstjóri á uppsjávarskipinu Ísleifi VE en skipið kom til Eyja í nótt með fyrstu loðnuna sem  uppsjávarhús Vinnslustöðvarinnar tekur við í ár.

„Vonandi upphafið að skínandi vertíð“
„Alltaf spennandi tími þegar loðnuvertíð hefst. Ísleifur kominn og Gullbergið lagði úr höfn til veiða í gærkvöld,“ sagði Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarvinnslu VSV, glaðbeittur mjög í morgun.
„Siglingin á miðin tekur um ellefu klukkutíma og svo styttast túrarnir eftir því sem loðnan gengur vestar með suðurströndinni. Vonandi er þetta upphafið að skínandi vertíð með tíðum „rútuferðum“ til okkar með fisk! Þetta leggst vel í mannskapinn enda skapar loðnan alltaf sérstaka stemningu, bæði veiðar og vinnsla“

Deila: