Barði náði 1.100 tonna loðnukasti

Deila:

Uppsjávarskipið Barði NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.225 tonn af loðnu sem fengust í tveimur köstum við Alviðru. Síðara kastið var 1.100 tonn.

Ekki undan neinu að kvarta
Við vorum nálægt landi og það var töluvert að sjá þarna í fjörunni,“ segir Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða NK í viðtali á vef Síldarvinnslunnar.  „Þarna voru þéttar lóðningar sem gáfu vel. Þetta er fallegasta loðna, um 38 stykki í kílóinu og 16% hrognafylling. Það er vinnslan sem stjórnar veiðunum. Við biðum á miðunum í um tvo daga áður en við gátum byrjað að veiða, en það var reyndar bræla annan daginn. Auðvitað vilja menn gera sem mest verðmæti úr loðnunni og þá þarf að veiða skynsamlega. Þetta var fyrsti nótatúr þessarar áhafnar á Barða og hann gekk eins og í sögu enda vanir kallar í hverju rúmi. Mér líst afskaplega vel á framhald loðnuvertíðarinnar. Það er einfaldlega ekki hægt að kvarta undan neinu,“ segir Þorkell.

Meðfylgjandi mynd er af Barða NK. Mynd: Smári Geirsson/svn.is

Deila: