Brugðust hratt við tíðindum um aukinn loðnukvóta

Deila:

Boðun Hafrannsóknastofnunar á aukningu loðnukvóta hefur kallað á skjót viðbrögð sjávarútvegsfyrirtækjanna sem loðnuveiðar stunda. Skammur tími er til stefnu og öll skip send til veiða sem fyrirtækin hafa yfir að ráða.
Þannig er hjá Síldarvinnslunni og frá því sagt í morgun á vef fyrirtækisins að nú sé verið að búa Bjarna Ólafsson AK til loðnuveiða. Ráðin var áhöfn á skipið í skyndi en sú áhöfn sem áður var á Bjarna Ólafssyni færði sig á sínum tíma yfir á Barða NK.

„Ráðgert er að skipið haldi til veiða í dag og verður Atli Rúnar Eysteinsson skipstjóri. Til að byrja með verður Runólfur Runólfsson Atla Rúnari til halds og trausts en Runólfur var lengi skipstjóri á Bjarna Ólafssyni og gjörþekkir skipið. Þegar Bjarni Ólafsson heldur til veiða verða loðnuskip Síldarvinnslunnar á vertíðinni fjögur talsins en fyrir eru Barði NK, Beitir NK og Börkur NK.
Samfelld vinnsla hefur verið í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Nú er verið að landa úr Vilhelm Þorsteinssyni EA sem er með 2.100 tonn en áður höfðu 1.550 tonn komið á land úr Beiti NK. Þá er Börkur NK á leiðinni með 2.500 tonn en góð veiði hefur verið vestur af Vestmannaeyjum. Vinnslan í fiskiðjuverinu hefur gengið afar vel og hráefnið hefur verið gott. Skipin eru nú að melda 19% hrognafyllingu þannig að ekki eru margir dagar í hrygningu. Þegar þetta er ritað hefur fiskiðjuverið í Neskaupstað tekið á móti um 18.000 tonnum á vertíðinni,“ segir á svn.is í morgun.

Á meðfylgjandi mynd af vef Síldarvinnslunnar í morgun er Bjarni Ólafsson að taka nótina um borð. Mynd: Smári Geirsson /svn.is

Deila: