Ófagurt um að litast eftir brunann

Deila:
Þó ekki hafi verið lagt mat á tjón í brunanum í seiðaeldisstöð Arctic Fish í Tálknafirði í gær er ljóst að það er mikið. Um er að ræða seiðaeldishús sem átti að taka í notkun í sumar en fyrir eru tvö önnur sem tókst að verja og er því seiðaeldi í þeim ótruflað. Þykir hins vegar ljós að mjög litlu hafi mátt muna að ekki fór mun verr.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir af brunnu húsinu sem gefa til kynnar hversu mikið eldhafið var. Myndirnar birtust á Facebook-síðu fyrirtækisins.
Deila: