Marsrallið hafið

Deila:

Árleg stofnmæling botnfisks á Íslandsmiðum hófst þann 27. febrúar síðastliðinn. Fjögur skip munu næstu þrjár vikurnar taka þátt í verkefninum. Það eru togararnir Breki VE, Gullver NS og rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson.

Þetta kemur fram á vef Hafrannsóknastonfnunar. Togað verður á tæplega 600 stöðum, á 20 til 500 metra dýpi umhverfis landið. Hér má fylgjast með ferðum skipanna.

Fram kemur á vef Hafró að rallið hafi verið framkvæmt með samræbilegum hætti árlega frá árinu 1985. Helmingur togstöðva hafi í upphafi verið staðsettur af skipstjórum en öðrum stöðvum hafi verið dreift um miðin með tilviljunarkenndum hætti.

Markmiðin með rallinu eru að fylgjast með breytingum á stofnstærðum, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Einnig verður sýnum safnað vegna ýmissa rannsókna, t.d. á mengunarefnum í sjávarfangi og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni, að því er segir á vefnum.

Deila: