Hafró hættir við svæðaskiptingu loðnukvóta

Deila:

Hafrannsóknastofnun hefur ákveðið að hverfa frá ráðgjöf um svæðaskipt aflamark loðnuveiða á yfirstandandi fiskveiðiári. Ráðgjöfin var gefin út 24. febrúar síðastliðinn. Fram kemur á vef stofnunarinnar að þessi endurskoðun byggi á ítarlegri yfirferð veiðiskipa fyrir Norðurlandi, þar sem sérstök áhersla var á Húnaflóasvæðið, ásamt könnun rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar og veiðiskipsins Venusar NS út af norðanverðum Vestfjörðum dagana 27. febrúar til 2. mars.

Fram kemur að athuganir leiði í ljós að loðnan sem mældist út af Húnaflóa í febrúar sé nú á göngu vestur fyrir land, þar sem gert er ráð fyrir að hún muni hrygna. Áður var talið að hún myndi hrygna fyrir norðan land, líkt og hafi  verið forsenda fyrir ráðgjöf um að veiðar fari fram fyrir norðan land.

Heildaraflamarkið er hinsvegar óbreytt frá fyrri ráðgjöf, eða 459 800 tonn, að því er framt kemur á vefnum.

Deila: