Stefna að kolefnishlutleysi Vopnafjarðar

Deila:

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, skrifaði á dögunum undir samstarfsyfirlýsingu þar sem stefnt er að kolefnishlutleysi Vopnafjarðarhrepps. Undir yfirlýsinguna skrifuðu einnig Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Sara Elísabet Svansdóttir, sveitarstjóri.

Yfirlýsingin kveður á um að þessir þrír aðilar hrindi í framkvæmd aðgerðum til að stuðla að kolefnishlutleysi í sveitarfélaginu. Fram kemur að til að ná markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og orkuskipti þurfi að tryggja samstarf ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. „Í því samstarfi þarf að leggja áherslu á aðgerðir til þessa að hraða orkuskiptum, uppbyggingu hleðsluinnviða fyrir þungaflutninga, landtengingu skipa, orkunýtingu og möguleika til aukinnar matvælaframleiðslu, kolefnisbindingar og nýtingu á lífrænum úrgangi,“ segir á vef Brims.

Þar er vitnað í Guðmund: „Til að ná markmiðum í umhverfis- og loftlagsmálum er skynsamlegt að hafa samvinnu og þess vegna fagnar Brim þessu samstarfi við stjórnvöld og Vopnfirðinga. Það hraðar vonandi nauðsynlegum aðgerðum og færir alla nær sameiginlegum markmiðum. Skynsöm nýting auðlinda leggur grunninn að starfsemi Brim og félagið mun leggja sitt af mörkum til ábyrgrar auðlindanýtingar og skynsamlegra loftslagsaðgerða. Brim hefur sett skýr umhverfismarkmið og tekið saman kolefnisspor félagsins frá árinu 2015 og þá birtir félagið árlega umhverfisuppgjör.“

Deila: