Margrét EA bætist við flota Samherja

Deila:

Samherji hefur fest kaup á skoska uppsjávarskipinu Christina S. Skipið kom til Reykjavíkur í gær og hefur verið skráð hér á landi. Skipið ber nafnið Margrét EA 710.

Fram kemur á vef Samherja að skipið hafi verið smíðað í Noregi árið 2008. Það er 72 metra langt og 15 metra breitt.

Skipið var smíðað í Noregi árið 2008 og er 72 metra langt og 15 metra beitt.

„Margrét EA 710 er vel búið skip á allan hátt og aðalvélin hefur aðeins verið keyrð í 16.400 klukkustundir. Þrettán kælitankar eru í skipinu og rúma þeir samtals liðlega tvö þúsund tonn af fiski,“ segir á vef Samherja.

Þar kemur fram að Margrét haldi fljótlega á lonðumiðin. Skipstjóri á skipinu er Hjörtur Valsson.

Myndin af skipinu er af vef Samherja.

Deila: