Heildaraflinn í febrúar minni en í fyrra

Deila:

Landaður afli í febrúar 2023 var 27% minni en árið á undan. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Alls voru 198 þúsund tonn veidd í febrúar 2022 eni 145 þúsund tonn að þessu sinni. Hagstofan segir að þetta með skýra með minni loðnuafla. Þorskafli stóð í stað á milli ára og var 22 þúsund tonn.

Afli á 12 mánaða tímabilinu mars 2022 til febrúar 2023 var 1.254 þúsund tonn sem er 187 þúsund tonnum minna en landaður afli á 12 mánaða tímabili fyrra árs.

Um bráðabirgðatölur er að ræða. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

 

Deila: