Eimskip eignast nýjan Bakkafoss

Deila:

Eimskip og Ernst Russ AG í Þýskalandi hafa í gegnum félagið Elbfeeder Germany keypt 1.025 gámaeininga skip. Þetta kemur fram á vef Eimskips. Þar segir að skipið, sem var smíðað árið 2009, muni hljóta nafnið Bakkafoss. Það verður sjötta skipið í sögu félagsins sem ber það nafn.

„Með kaupunum stækka fyrirtækin enn frekar vel samsett eignasafn sitt í gámaskipum, en nú þegar eru sjö gámaskip í sameiginlegri eigu félaganna í gegnum fyrirtækin Elbfeeder og Feederstar. Eimskip mun leigja skipið og áætlað er að það komi í þjónustu félagsins á öðrum ársfjórðungi og muni sinna siglingum á Norður-Ameríkuleið félagsins,“ segir á vef Eimskips.

Þar segir einnig að með Bakkafossi styrki Eimskip þjónustu sína í Trans-Atlantic flutningum. Bakkafoss sé stærra og öflugra skip á þessari mikilvægu flutningsleið. „Í dag eru fjögur skip á Norður-Ameríkuleið félagsins en með kaupunum ráðgerir félagið að fækka um eitt skip í rekstri en viðhalda sambærilegri afkastagetu í siglingakerfinu.“

Deila: