Kristín Heiða til liðs við Sjávarklasann

Deila:

Kristín Heiða Helgadóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra Sjávarklasans á Íslandi. Hún hefur störf í sumar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en Kristín hefur undanfarin ár verið framkvæmdastjóri Niceland Seafood auk þess að koma að stofnun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækja hérlendis og í Bandaríkjunum.

Fram kemur að Kristín Heiða sé með gráðu í stjórnmálafræði auk þess að hafa undanfarið starfað sem pólitískur ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar. Hún var einnig kosningastjóri og framkvæmdastjóri Besta flokksins og er einn af stofnendum Bjartrar framtíðar.

Íslenski sjávarklasinn er í tilkynningunni sagður drifkraftur nýrra hugmynda og er sagður stuðla að „öflugu samstarfi fyrirtækja og frumkvöðla í sjávarútvegi og haftengdri starfsemi.“ Hús sjávarklasans sé samfélag yfir 70 fyrirtækja og það sé vettvangur til að skapa ný verðmæti.

Þór Sigfússon, stofnandi Sjávarklasans, segir að aldrei hafi fleiri og fjölbreyttari sprotaverkefni verið í bláa hagkerfinu. „Það er mikill fengur að fá Heiðu Kristínu til liðs við okkur. Hún er kraftmikil og með víðtæka reynslu sem mun nýtast vel við að leiða starfið áfram og takast á við þær áskoranir sem fram undan eru,” er haft eftir honum í tilkynningunni.

Í tilkynningunni er líka haft eftir Heiðu Kristínu: „Ég hef lengi hrifist af starfi Sjávarklasans á Íslandi enda hefur klasahugmyndafræðin margsannað gildi sitt við stofnun og uppbyggingu fyrirtækja og nýrra verkefna. Sjávarklasinn byggir á góðum grunni og er í lykilstöðu sem hreyfiafl í íslensku samfélagi nú þegar áherslan á fullnýtingu afurða og hringrásarhagkerfið er í hámæli. Nýjasta verkefni klasans, Grænir iðngarðar í Helguvík, er til marks um þann metnað og framtíðarsýn sem Sjávarklasinn hefur ætíð staðið fyrir og ég er stolt og spennt að fá að leggja lóð mitt á vogarskálar Þórs Sigfússonar stofnanda klasans og hans samstarfsfólks við að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi með áherslu á nýsköpun og verðmætasköpun innan bláa hagkerfisins“ segir Heiða Kristín.

Deila: