Ísland tók þátt í The Boston Seafood Show

Deila:

Ísland var þátttakandi í sjávarútvegssýningunni The Boston Seafood Show sem fram fór dagana 12.-14. mars. Frá þessu er greint á vef Íslandsstofu. Þar segir að sýningin hafi verið afar vel sótt; hún hafi náð vopnum sínum eftir COVID.

„Íslandsstofa var með þjóðarbás bæði á „Seafood“ svæði sýningarinnar og „Seafood Processing“ svæðinu. Á básunum var Ísland kynnt sem upprunaland hreinna og heilnæmra afurða þar sem sjálfbærni er höfð að leiðarljósi. Þá var Ísland kynnt sem tilvalinn staður til að eiga viðskipti með sjávarútvegstækni, bæði hvað varðar lausnir tengdar veiðum sem og vinnslu og hámarks nýtingu sjávarfangsins,“ segir á vefnum.

Eftirfarandi aðilar tóku þátt á Íslandsbásunum í Boston: Eðalfiskur ehf., Icelandic Trademark Holding ehf. (Icelandic Seafood), Iceland Responsible Fisheries, Matorka, Stormar, Vélfag og Wisefish. Þá sótti fjöldinn allur af Íslendingum Boston Seafood Show heim og nokkur íslensk fyrirtæki voru að auki með eigin bása á sýningunni.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá sýningunni. Hér má sjá nokkrar myndir frá sýningunni.

Deila: