Gullver kominn úr rallinu

Deila:

Togarinn Gullver kom til heimahafnar á Seyðisfirði síðdegis á föstudag og hafði þá lokið þátttöku í hinu svonefnda togararalli eða marsralli. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Fram kemur að hlutverk skipsins hafi veirð að toga á um 150 stöðvum frá Þórsbanka og vestur fyrir Grímsey – eða á Norðaustursvæði.

Togararallið gekk vel hjá Gullveri.  „Þessi síðari hluti tók níu daga og í honum var togað á 80 stöðvum. Alls tók rallið átján daga hjá Gullver. Það var alls ekkert sérstakt veður í seinni hlutanum; grimmdarfrost allan tímann og allt gaddfreðið. Aflinn í seinni hlutanum var 33 tonn en hann var um 12 tonn í fyrri hlutanum. Þetta eru samtals um 45 tonn sem ég held að sé vel yfir meðaltali á norðaustursvæðinu. Mig minnir að Bjartur hafi einu sinni fengið yfir 50 tonn í ralli hér á þessu svæði en Bjartur tók þátt í ralli í hvorki meira né minna en tuttugu og sex ár,“ er haft eftir Steinþóri Hálfdánarsyni skipstjóra.

Þegar Gullver kom til Seyðisfjarðar var aflanum úr síðari hluta rallsins landað, að því er segir í fréttinni, veiðarfærin frá Hafrannsóknastofnun sett á land og tekin olía. Síðan verða eigin veiðarfæri skipsins tekin um borð og væntanlega haldið til veiða um hádegi á morgun, þriðjudag.

Deila: