Leggja til minni grásleppuveiði

Deila:

Hafrannsóknastofnun leggur til að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2022/2023 verði ekki meiri en 4.411 tonn. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Um er að ræða 37% lækkun á milli ára.

Fram kemur að ráðgjöfin byggi að mestu á stofnvísitölumælingu botnfiska í mars 2023, en hún var undir langtímameðaltali og lægri en sést hefur undanfarin ár. Þá segir að stofnvísitölur hrognkelsa sveiflist ár  frá ári sem endurspeglist að hlut til í óvissu í mælingunum.

Stofnvísitölur hrognkelsa sveiflast milli ára sem endurspegla að hluta til óvissu í mælingunum. „Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla, en vísitala síðasta árs var nálægt langtíma meðaltali. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2023/2024 verði 1193 tonn.“

Deila: