Svandís ávarpaði SFS: „Hvenær er samþjöppunin orðin of mikil?“

Deila:

„Ég hef sagt það áður og segi það aftur hér; stóra verkefnið þegar kemur að stjórnun fiskveiða hér á landi er að ná fram aukinni sátt. Tilfinningin um að kerfið sé óréttlátt er yfirgnæfandi hjá stórum hluta þjóðarinnar og við verðum að horfast í augu við það. Vegna þess meðal annars setti ég af stað vinnu við verkefnið Auðlindina okkar, snemma á kjörtímabilinu.“ Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra þegar hún ávarpaði aðalfund Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) síðastliðinn föstudag. 

Hún vísaði til umræðu um að fiskveiðistjórnunarkerfið hefði annars vegar leitt til mikillar samþjöppunar og byggðaröskunar en hins vegar að rætt væru um að kerfið væri gullsniðið, fyrirmynd fyrir aðrar þjóðir um nýtingu auðlindarinnar á sjálfbæran hátt. Ráðherra benti einnig á að listin hafi gert tilraunir til að lýsa sögu fiskveiðistjórnunarkerfisins, nú síðast með þáttunum Verbúðinni.

Svandís sagði að sjávarútvegur væri burðarás í íslensku atvinnulífi og framlag hans til sameiginlegra sjóða samfélagsins væri myndarlegt. Ársfjórðungsuppgjör bentu til þess að síðustu ár hefðu verið útgerðinni hagfelld.

Sameiginlegt markmið okkar allra ætti að vera að aukin sátt ríki um þetta framlag, að almenningur hafi þá tilfinningu að skiptingin milli arðgreiðslna til hluthafa og raunverulegra eigenda auðlindarinnar sé réttlát […] Umræða um sjávarútveg hverfist oft um stærstu og öflugustu fyrirtækin innan ykkar raða. Á síðasta ári veiddu 10 stærstu fyrirtækin tæpan þriðjung af botnfiskafla í landinu. En það er oft minna talað um öll hin fyrirtækin sem veiða tvo þriðju af öllum botnfiskafla í landinu. Það eru gjarnan fjölskyldufyrirtæki með á bilinu 15-30 starfsmenn, sem glíma líka við stóru áskoranir samtímans; tæknibyltingar og umhverfismál. Pláss þessara hagsmuna í umræðunni er oft af afar skornum skammti […] Eðlilega spyrja eigendur þessara útgerða sig hvort það sé þess virði að fjárfesta og veðja öllu á að ná betri stöðu þegar óvissa er um hvort leikreglurnar verði óbreyttar á næstu árum. Hvenær er samþjöppunin orðin of mikil og hvað viljum við í þeim efnum? Viljum við eingöngu stór fyrirtæki í kauphöllinni eða viljum við fjölbreyttari sjávarútveg?“

Ráðherra ræddi líka verkefnið Auðlindin okkar og benti á að þar væru 60 bráðabirgðatillögur á borðinu. Hún sagðist vita að þær legðust misvel í hagsmunaaðila, enda ekki við öðru að búast. En ég hef fulla trú á því að lokaafurðin muni skila árangri,“ sagði ráðherra.

Ávarpið í heild má sjá hér.

Deila: