Pappírnum fleygt: Stafræn aflaskráning fest í reglugerð
Matvælaráðherra hefur gefið út nýja reglugerð um stafræna skráningu og skil aflaupplýsinga. Reglugerðin kveður á um skyldu til að skila aflaupplýsingum með stafrænum hætti í vefþjónustu Fiskistofu. Frá 1. apríl verður ekki lengur hægt að skila inn aflaupplýsingum á eyðublöðum eða undirrituðum á pappír til Fiskistofu
Fram kemur á vef Fiskistofu að stofnunin vonist til að skipstjórar taki vel í þessa breytingu. Eftirtaldir aðilar bjóða upp á þjónustu til að skrá afla:
Ýmsar gagnlegar upplýsingar um skil á aflaupplýsingum er svo hægt að nálgast í grein um afladagbækur.