Vélar sem keyra á ammoníaki

Deila:

„Það styttist í að við förum að sjá fiskeldisbáta með stórum rafhlöðum og öflugar landtengingar fyrir brunnbáta,“ segir á vef Bláma sem er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða og Vestfjarðastofu. Fyrirtækið fékk hvatningarverðlaun SFS, sem veitt voru á ársfundi samtakanna þann 24. mars síðastliðinn.

Meginmarkmið Bláma er að styðja við og efla nýsköpun og þróun orkuskiptaverkefna með því að auka hlut vistvæns eldsneytis, vetnis og rafeldsneytis í samgöngum og iðnaði. Blámi vill ýta undir orku- og loftslagstengda nýsköpun, efla frumkvöðla og styrkja nýsköpunarumhverfið á Vestfjörðum.

Á vefnum segir að Blámi hafi unnið að spennandi verkefnum tengdum sjókvíaeldi, til dæmis landtengingum og rafhlöðukerfum. „Hvað hefðbundin sjávarútveg varðar þá er hægt að keyra skipavélar sem brenna metanóli og verið að vinna að einu slíku verkefni á Íslandi og á næsta ári verður hægt að fá vélar sem keyra á ammoníaki.“

Fram kemur að verðlaun sem þessi hafi mikla þýðingu og sýni að fyrirtækið sé á réttri leið. „Það er ánægjulegt að sjá og finna að sjávarútvegsfyrirtækin eru opin fyrir að skoða tækifæri á sviði vistvænna orkugjafa. Við megum ekki gleyma að þessi fyrirtæki hafa verið  framarlega í að minnka orkunotkun, hvort sem það er með stærri skrúfum, sparneytnari vélum eða léttari hlerum.“

Framkvæmdastjóri Bláma er Þorsteinn Másson.

Deila: