Nýr togari Þorbjarnar fær nafn eins stofnanda

Deila:
Nýtt skip Þorbjarnar í Grindavík, sem er smíðum hjá Amon í Gijón á Spáni mun bera nafnið Hulda Björnsdóttir GK-11.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu á Facebook. Hulda var ein af stofnendum fyrirtækisins en það var stofnað árið 1953. Hulda hefði orðið 92 ára þann 1. apríl 2023.
Hulda verður ísfisktogari, 58 metrar að lengd og 13,6 metrar á breidd.
Fyrirhugað er að smíði togarans ljúki á næsta ári.

Deila: