Enn frábær veiði hjá ísfisktogurnum

Deila:

Ísfisktogararnir Bergur og Vestmannaey lönduðu báðir fullfermi síðasta dag aprílmánaðar, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að Gullver NS hafi komið með fullfermi til hafnar á Seyðisfirði. Afli allra skipanna var blandaður. „Bergur hélt strax til veiða á ný að löndun lokinni og landar góðum afla í Eyjum í dag. Afli hans nú er mest ýsa ásamt þorski, löngu og lýsu,” segir á vefnum.

Haft er eftir Birgi Þór Sverrissyni, skipstjóra á Vestmannaey, að túrinn hafi verið stuttur; um tveir sólarhringar. „Það er ekki hægt að kvarta yfir aflabrögðunum, það gekk vel að fiska. Við byrjuðum í Háadýpinu og tókum þar fáeinar sköfur en síðan var haldið austur á Ingólfshöfða. Aflinn er mjög blandaður; þorskur, ýsa, steinbítur, koli, langa og lýsa. Það verður farið út aftur á fimmtudag,“ segir Birgir Þór.

Jón Valgeirsson á Bergi segir að aflabrögð séu góð. „Aflinn í þessum seinni túr var mest ýsa ásamt þorski og svolitlu af löngu og lýsu. Það er sko nóg af fiski og ekki erfitt að fá í skipið. Menn verða helst að passa sig á að taka ekki of mikið. Nú verður svolítið slakað á og haldið til veiða á ný á fimmtudag,“ segir Jón.

Steinþór Hálfdanarson, skipstjóri á Gullver, segir að veiðiferðin hafi gengið vel. „Þetta var sex daga túr og aflinn var 116 tonn eða fullfermi. Við veiddum mest í Berufjarðarálnum og Hvalbakshallinu og skruppum reyndar í Lónsdýpið í tvígang. Veðrið var óvenju gott, norðan gola og hið meinlausasta veður. Það verður haldið á ný til veiða í kvöld og uppleggið er svipað og var í þessum túr,“ segir Steinþór.

Deila: