Þyrlan sótti veikan strandveiðimann

Deila:

Laust eftir miðnætti fékk stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynningu um veikindi um borð í fiskibát sem var á strandveiðum vestur af Sandgerði, að því er fram kemur á vef Landhelgisgæslunnar.

Eldri maður var um borð í bátnum. Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarskipið Stefnir frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og varðskipið Þór voru kölluð út og beðin um að halda á staðinn. Þá var fiskibátur í grenndinni sömuleiðis beðinn um að halda á vettvang.

Skipverjinn var hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og komið undir læknishendur í Reykjavík. Sigmaður þyrlunnar varð eftir í bátnum og sigldi honum til Sandgerðis í fylgd Stefnis.

Á sjöunda tímanum í morgun var fiskibáturinn kominn til Sandgerðis, að því er segir í fréttinni.

Deila: