Birta allar ábendingar vegna Auðlindarinnar okkar

Stjórnvöld hafa birt samantekt á ábendingum almennings, sérfræðinga og hagaðila sem leitað var til við undirbúning sjávarútvegsstefnu í verkefninu Auðlindin okkar. Samantektin heitir Tæpitungulaust og inniheldur ábendingar þeirra 132 sérfræðinga sem samstarfshópar og samráðsnefnd verkefnisins leituðu til. Einnig eru þar ummæli fundargesta sem tjáðu sig á samræðufundum sem haldnir voru á Akureyri, Eskifirði, Ísafirði, Reykjavík og Vestmannaeyjum. Samræðufundina sóttu um 500 manns og um 5.000 fylgdust með þeim í streymi.
Samantektin er birt á vef Stjórnarráðsins. Í henni má jafnframt finna þær athugasemdir sem fram komu í samráðsgátt stjórnvalda við bráðabirgðatillögur samráðsnefndar verkefnisins sem kynntar voru í janúar sl. auk skriflegra svara úr spurningakönnun Félagsvísindastofnunar og ábendinga sem bárust á netfangið audlindinokkar@mar.is.
„Starfshópar verkefnisins leggja nú lokahönd á þær tillögur sem kynntar verða 6. júní nk. Í framhaldinu verða undirbúin lagafrumvörp sem verða lögð fram á vorþingi 2024,” segir á vefnum.