Skip gæslunnar verða í Reykjaneshöfn

Deila:

Áformað er að heimahöfn flota Landhelgisgæslunnar verði Reykjaneshöfn og að starfsemi tengd rekstri þeirra færist að verulegu leyti þangað. Fyrirhugað er að ráðast í uppbyggingu framtíðaraðstöðu fyrir skipin í Reykjaneshöfn. Þetta kemur fram í viljayfirlýsingu um uppbyggingu að framtíðaraðstöðu fyrir skipaútgerð Landhelgisgæslunnar.

Viljayfirlýsinguna undirrita Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Auðunn F. Kristinsson, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri Reykjaneshafnar.

Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að aðilar að þessari viljayfirlýsingu hafa átt í viðræðum um uppbyggingu á framtíðaraðstöðu fyrir skipaútgerð Landhelgisgæslu Íslands í Reykjanesbæ. Þau áform hagga ekki útgerð varðskips frá Norðurlandi.

Áformin lúta að gerð langtímaleigusamnings um viðlegukant, auk nauðsynlegrar aðstöðu fyrir þau tæki og búnað sem tilheyra rekstrinum, auk veituþjónustu.

„Landhelgisgæslan hefur lengi horft til þess að komast í varanlega aðstöðu með skipakost sinn þar sem hægt er að tryggja öryggi og starfsaðstöðu bæði fyrir áhafnir og þann búnað sem þarf til reksturs varðskips. Hugmyndir að uppbyggingu fyrir Landhelgigæsluna í Reykjaneshöfn falla vel að þörfum og væntingum stofnunarinnar um hafnaraðstöðu. Ráðherrann hefur lýst þessum hugmyndum fyrir fjárlaganefnd í umræðum um fjármálaáætlun,” segir í fréttinni.

Fram kemur að viðbragðstími tio suðurs styttist um a.m.k. tvær klukkustundir við þessa breytingu. Viðbragðstíminn til norðurs verður óbreyttur frá því sem verið hefur.

Deila: