Hafa ekki brugðist við úr­bóta­til­lögum Ríkis­endur­skoðunar

Deila:

Matvælaráðuneyti (áður atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti) og eftir atvikum Fiskistofa hafa ekki brugðist með viðunandi hætti við úrbótatillögum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2018. Þetta kemur fram í eftirfylgniúttekt Ríkisendurskoðunar sem stofnunin kynnti fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær.

Fram kemur að eftirlit með framkvæmd laga um stjórn fiskveiða og laga um umgengni um nytjastofna sjávar hafi ekki verið styrkt og nauðsynlegar úrbætur í eftirliti með vigtun sjávarafla, brottkasti og samþjöppun aflaheimilda hafi ekki náð fram að ganga. „Flestir þeirra veikleika sem bent var á eru enn til staðar og telur Ríkisendurskoðun tilefni til að ítreka 10 af þeim 11 tillögum til úrbóta sem stofnunin lagði fram í skýrslu sinni árið 2018 í heild eða hluta. Eftirlit Fiskistofu með vigtun afla og brottkasti er enn takmarkað og efast má um að það skili tilætluðum árangri.”

Fram kemur að vísbendingar séu um að umfang brottkasts hafi verið vanmetið af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar hafi veirð unnin árið 2018. „Þá hefur Fiskistofa ekki tekið upp verklag sem tryggir að yfirráð tengdra aðila yfir aflahlutdeildum séu könnuð með markvissum og reglubundnum hætti í samræmi við ákvæði laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.”

Deila: