Skammarlegt að ekki hafi verið samið við sjómenn

Deila:

„Það er skammarlegt að þrátt fyrir allt þetta treysti útgerðarmenn sér ekki til að semja við sjómenn. Ég skora á útgerðarmenn að leggja sig fram við að ná samningum við þessa lykilstarfsmenn sína. Það er nóg til.” Þetta segir Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna í pistli í tilefni sjómannadagsins.

Hann bendir á að nú sé fjórði sjómannadagurinn að runninn upp síðan kjarasamningar sjómanna og SFS hafi síðast runnið út. „Að vísu skrifuðu öll stéttarfélög sjómanna undir nýjan kjarasamning  9. febrúar síðastliðinn, þar sem félögin töldu ekki lengra komist án átaka. Það er skemmst frá því að segja að að öll félögin, ef Félag skipstjórnarmanna eru undanskilin, felldu samninginn. Það er ótrúlegt að útgerðarmenn, sem margir hverjir reka fyrirtæki sem skila miklum arði ár frá ári, geti ekki náð sáttum við sjómenn sína, þá starfsmenn sem afla verðmætanna.”

„Guðmundur bendir á að hagnaður útgerðarfélaga fari hækkandi ár frá ári. Á síðasta ári nam rekstr­ar­hagnaður Brims fyr­ir af­skrift­ir og fjár­magnsliði (EBITDA hagnaður) ígildi 17 millj­örðum króna. Hann jókst um rúm 25% á milli ára. Þá nam hagnaður Síld­ar­vinnsl­unn­ar á síðasta ári um 10,2 millj­örðum króna. Eigið fé samstæðunnar var í lok árs 83 milljarðar króna. Gunnþór Ingva­son, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unn­ar, hefur látið hafa eftir sér að árið 2022 sé besta rekstr­ar­ár í sögu Síld­ar­vinnsl­unn­ar. Árið hafi einkennst af góðum gangi í veiðum og vinnslu.

Það eru ekki bara stóru sjávarútvegsfyrirtækin sem skila góðum hagnaði. Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði hefur aldrei skilað meiri hagnaði en í fyrra; þremur og hálfum milljarði króna. Það er langbesta rekstrarár fyrirtækisins.”

Deila: