Samskip fá gullvottun EcoVadis

Deila:

Samskip hf. hafa hlotið gullvottun EcoVadis á sviði samfélagslegrar ábyrgðar og sjálfbærni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að EcoVadis sé alþjóðlega viðurkenndur vottunaraðili og er úttekt fyrirtækisins afar ítarleg og nái til frammistöðu fyrirtækja um allan heim. Með viðurkenningunni séu Samskip hópi efstu 5% fyrirtækja á heimsvísu sem vottuð séu af EcoVadis.

Haft er eftir Birki Hólm Guðnasyni forstjóra að sjálbærni sé samofin kjarnastefnu Samskipta heima og erlendis og sjálfbærnimarkmið séu höfð að leiðarljósi hvarvetna í starfseminni. „Víða hefur náðst góður árangur, svo sem með minni útblæstri í skipaflutningum, sem á fimm árum hefur dregist saman um 35,1 prósent. Gullvottun EcoVadis er staðfesting á þeim árangri sem náðst hefur og er okkur hvatning til áframhaldandi góðra verka.“

Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar, segir gaman að fá staðfestingu á því að Samskip séu í fremstu röð fyrirtækja þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð og jákvæðu framlagi til samfélagsins. „Samskip settu sér nýja stefnu í umhverfismálum 2019 og fengu ári síðan silfurvottun EcoVadis. Gullvottun nú endurspeglar áherslu okkar á að ná árangri á sviði sjálfbærni og samfélagslegrar ábyrgðar.“

 

Deila: