Annað hvort að selja bátinn eða flytja

Deila:

„Það voru fleiri þættir sem spiluðu inn í þessa ákvörðun en fyrirkomulag strandveiðanna gerði eiginlega útslagið,“ segir strandveiðimaðurinn Guðmundur Baldursson. Hann er að hefja sína fjórðu vertíð á strandveiðum en hefur róið frá Kópaskeri síðastliðin þrjú ár en seldi húsið og flutti suður á bóginn ásamt konu sinni, Ingu Sigurðardóttur síðastliðið haust.

Guðmundur, á langan feril að baki sem sjómaður og trillukarl en hafði sagt skilið við sjómennskuna fyrir um 15 árum, þegar hann ákvað að kaupa bát með syni sínum, síðla árs 2020. Í millitíðinni stundaði hann smíðar um árabil en rak svo ásamt Ingu verslunina Skerjakollu á Kópaskeri um sjö ára skeið, eða þar til fyrir um hálfu öðru ári. Hann nýtur þess nú að grípa í strandveiðar á sumrin.

„Við höfum lítið sem ekkert haft upp úr veiðunum síðustu tvö árin, enda hafa veiðarnar hafa verið stöðvaðar í júlí. Við höfum reyndar líka verið óheppnir með bilanir. Eitthvað varð að breytast til að hægt væri að réttlæta að halda þessu áfram.“

Nánar er rætt við Guðmund í nýju tölublaði Ægis.

Deila: