Afli í maí var 87 þúsund tonn

Deila:

Í maí lönduðu íslensk skip rúmlega 87 þúsund tonnum af afla sem var 14% minna en í maí 2023. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Þar segir að botnfiskaafli hafi aukist um 19%miðað við maí í fyrra og uppsjávarafli hafi minnkað um 37%.

„Heildarafli á tólf mánaða tímabilinu frá júní 2023 til maí 2024 var rúmlega 1,08 milljón tonn sem var 25% minna en aflinn á sama tólf mánaða tímabili ári fyrr. Engin loðnuveiði hefur verið í ár sem skýrir þennan mun.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.”

Deila: