Laxey fær rekstrarleyfi fyrir 7000 tonnum

Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Laxey hf. rekstrarleyfi til fiskeldis á landi í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Þetat kemur fram á vef stofnunarinnar. Þar segir að um sé að ræða nýtt rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonna hámarkslífmassa vegna matfiskeldis á laxi og regnbogasilungi.

„Laxey hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 7.000 tonna hámarkslífmassa matfiskeldi á laxi og regnbogasilungi í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 2. mars 2023. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar,” segir í fréttinni.

Þar kemur fram að heimilt sé að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Deila: