Fjögur skemmtiferðaskip á einum degi

Deila:

Fjögur skemmtiferðaskip lögðust að bryggju á Ísafirði í gær, 7. ágúst. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Ísafjarðarhafnar. Farþegarnir á þessum skipum eru samtals um 2.500 talsins. Stærst skipanna er Arcadia með um það bil 1.900 farþega. Á síðunni er fjallað um skipið.

ARCADIA er nú að koma til að kveðja okkur þetta sumarið og í tilefni af því ætlum við að rifja upp það sem áður hefur verið ritað um skipið hér á þessari síðu:
Arcadia var smíðuð í Marghera á Ítalíu og fór sína fyrstu ferð í apríl 2005. Upphaflega var það skipafélagið Holland America sem ætlaði að láta smíða fleyið, en úr varð að önnur útgerð, Cunard Line, yfirtók pöntunina. Þá var nú framtíð Arcadiu heldur betur öll í gylltum og rósrauðum bjarma því ætlunin var að hún fengi að flytja fólk um heimsins höf undir nafninu Queen Victoria. En eins og flestir drottningardraumar þá var þessi dæmdur til að deyja. Örstuttu áður en drottningin verðandi rann skartklædd úr skipasmíðastöðinni gripu örlögin í taumana og eignarhaldið á henni var fært yfir á enn eitt útgerðarfyrirtækið, P&O Cruises. Vísast voru þau vélráð brugguð í höfuðstöðvum Carnival Corporation samsteypunnar, en allar eru þessar útgerðir hluti af því veldi.
Nýtt eignarhald þýddi að ekki var lengur von um neina drottningartign fyrir hið nýja skip, það eina sem beið var aum almúgatilveran. Mögulega var það samt nokkur huggun harmi gegn að ein dáðasta íþróttakona Breta fyrr og síðar, hlauparinn Kelly Holmes, tók að sér að verða guðmóðir skipsins. Holmes, sem varð Ólympíumeistari í bæði 800 og 1500 metra hlaupi árið 2004, gaf skipinu nafnið Arcadia, sem er svo sem ekkert slor því það vísar til eins konar paradísar í grískri goðafræði. Fyrir þá lesendur sem gengu um með sítt að aftan, herðapúða og uppbrettar ermar á níunda áratugnum þá lætur nafnið Arcadia vísast kunnuglega í eyrum. Þetta er nefnilega, eins og allir muna, nafnið á eins konar aukahljómsveit sem þrír meðlimir stórsveitarinnar Duran Duran stofuðu sér til dægrastyttingar. Ekki hefur fengist staðfest hvort það var hljómsveitin eða gríska goðafræðin sem var eigendum skipsins innblástur við ákvörðun nafnsins.
Eftir stoppið hjá okkur á morgun fer Arcadia til Akureyrar og hverfur þaðan af landi brott. Hún mun næst heimsækja okkur þann 5. júlí 2025.
Deila: