Sigurbjörg ÁR hefur veiðar í ágúst

Nýtt skip Ísfélagsins, Sigurbjörg ÁR, kom til hafnar í Hafnarfirði um mánaðamótin. Frá þessu er greint á vef Eyjafrétta. Þar segir að Rammi hafi tekið ákvörðun um smíðina á sínum tíma og að Sigurbjörg hafi verið hugsuð sem humar- og bolfiskveiðiskip sem sjá átti vinnslunni í Þorlákshöfn fyrir hráefni.
Rakið er í fréttinni að síðan hafi margt breyst. Humarveiðar hafi verið bannaðar og starfsemin hafi verið lögð niður í Þorlákshöfn. Rammi hafi auk þess sameinast Ísfélagi Vestmannaeyja, sem í dag heitir Ísfélag ehf.
Fram kemur að skipið hafi verið smíðað í Istanbúl og sé 48 metrar á lengd og 14 á breidd. Vinnslubúnaður um borð í skipinu mun vera fyrsta flokks. Sjálfvirkur búnaður setji afla í lest og landi, þannig að lestarvinna háseta er úr sögunni.
Íbúðir eru fyrir 15 manna áhöfn í skipinu.
Kaupverð skipsins er um 3,1 milljarður en gert er ráð fyrir að það haldi til veiða í ágústmánuði. Skipstjórinn er Svigvaldi Páll Þorleifsson.
Athugið að meðfylgjandi mynd er tölvuteiknuð.
