Fjórir í vélarvana bát

Björgunarskipið Hafbjörg var kallað út um klukkan eitt í dag vegna vélarvana báts 17 mílum norðvestan af Neskaupstað. Vísir greinir frá þessu.
Þar segir að báturinn sé í togi og og Hafbjörg sigli með skipverjana fjóra sem voru um borð að landi.
„Það var engin hætta á ferð. Það var bilun í gír. Vélin er í fínu lagi en hún snýr ekki skrúfunni. Ég hef ekki upplýsingar um hvernig þetta gerðist,“ er haft eftir upplýsingafulltrúa Landsbjargar.
