Leifar af Eimskips-gámi í trollið

Deila:

Í fyrrinótt þegar ísfisktogarinn Bergur VE var á landleið til Vestmannaeyja af Austfjarðamiðum var ákveðið að taka lokahol túrsins á Pétursey. Þegar trollið var síðan tekið upp kom í ljós að því fylgdu hliðar úr gámi sem augljóslega var kominn frá Eimskip.

Síldarvinnslan segir frá þessu á vef sínum. Jón Valgeirsson skipstjóri segir að þetta hafi ekki komið neinum á óvart enda séu gámar víða á hafsbotni. Það þurfi ekki að koma neinum á óvart þegar horft sé til þess hvernig flutninga skipin eru hlaðin.

„Fyrir okkur eru þessir gámar auðvitað alger ófögnuður. Þetta var stærsti hlutinn af hliðum gámsins sem kom upp með trollinu en við vorum heppnir að því leyti að veiðarfærið virðist ekki hafa skemmst við þetta. Í vor voru fréttir af því að skip hefði misst eina 15 gáma í sjóinn úti fyrir suðurströndinni og voru einhverjir að giska á að þessi gámur væri einn af þeim. Það getur hins vegar ekki verið því skipið missti gámana á Síðugrunni sem er 30 mílum austar en sá staður sem við fengum gámaleifarnar á. Við komum að sjálfsögðu með þetta drasl í land og þar verður því fargað. Ég hef spurnir um að skip hafi lent í gámi á þessum slóðum áður og það gæti hafa verið sami gámurinn,” segir Jón.

Myndirnar af gámnum má sjá í fréttinni á vef Síldarvinnslunnar.

Deila: